Erlent

Morð í aðdraganda kosninga

Undirbúningur fyrir þingkosningarnar í Afganistan á sunnudag gengur skelfilega þar sem morð og ofbeldi einkennir aðdraganda þeirra. Uppreisnarmenn úr röðum talibana, sem skora á kjósendur að hunsa kosningarnar, skutu einn frambjóðanda til bana í nótt, en þegar hafa sjö frambjóðendur verið myrtir í landinu. Þá létust þrír óbreyttir borgarar í sprengingu í dag. Uppreisnarmenn hóta enn meira blóðbaði verði kjósendur ekki við áskorun þeirra. Rúmlega 2700 gefa kost á sér í 249 þingsæti, en kjörstaðir eru rúmlega sex þúsund.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×