Erlent

Viðurkenndi mistök stjórnvalda

George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í gær að öll stig stjórnkerfisins hefðu brugðist eftir hamfarirnar við Mexíkóflóa. Hann sagði í sjónvarpsræðu í gærkvöldi að vandinn hefði reynst yfirþyrmandi fyrir þunglamalegt kerfi sem þyrfti að bæta. Hann bæri á endanum sjálfur ábyrgðina sem forseti landsins og það væri einnig í hans höndum að finna lausnina. Þá lofaði forsetinn einhverri víðtækustu uppbyggingu í sögunni á hamfarasvæðunum. Það væri óhugsandi að ímynda sér Bandaríkin án New Orleans og borgin myndi rísa úr öskustónni. Sérfræðingar telja að kostnaður vegna hreinsunarstarfs, heilbrigðisþjónustu og uppbyggingar heimila og skóla verði á endanum aldrei minni en tvö hundruð milljarðar dollara. Alls hafa nú fundist tæplega 800 lík á hamfarasvæðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×