Héraðshöfðingjar strengja sín heit 15. september 2005 00:01
Forsætisráðherrar ellefu af sextán sambandslöndum Þýskalands, sem allir eru í flokki með Angelu Merkel, hétu því í gær að leggjast á eitt með henni, verði hún kanslari, við að koma nauðsynlegum efnahagsumbótaráðstöfunum í gegn um þingið. Tilgangurinn með þessari afdráttarlausu samstöðuyfirlýsingu var að telja kjósendur á að kjósa stjórnarskipti nú um helgina. Meðal þess sem gerði ríkisstjórn jafnaðarmanna og græningja erfitt fyrir að koma sínum umbótaáætunum í framkvæmd var að þær þurftu að fást samþykktar í efri deild þingsins, Sambandsráðinu, en í því eiga sæti fulltrúar stjórna sambandslandanna. Allt síðasta kjörtímabil voru flokksbræður Merkel þar í meirihluta. Í þýska sambandslýðveldinu hefur oft sýnt sig að héraðshöfðingjarnir láti sérhagsmuni eigin héraðs ganga fyrir heildarhagsmunum ríkisins, jafnvel þótt sami flokkur sé við völd bæði í héraði og í höfuðborginni. Af þessari ástæðu þykir yfirlýsing þeirra nú hafa vægi í baráttunni um atkvæðin. "Þýskaland þarf á skýrri stefnu að halda, sem byggir á skýrum meirihluta. Stjórnarskipti í Berlín eru nauðsynleg fyrir Þýskaland til að binda endi á hörmulega stefnu "rauð-grænu" stjórnarinnar," segir í yfirlýsingu héraðsleiðtoganna.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira