Erlent

N-Kóreumenn gefa ekki eftir

Enginn árangur varð af fundi fulltrúa sex ríkja í Peking í dag þar sem menn freistuðu þess að finna sameiginlegan grundvöll fyrir því að norðurkóresk stjórnvöld hættu við kjarnorkuvopnaáætlun sína. Tvíhliða viðræður Bandaríkjamanna og Norður-Kóreumanna strönduðu á kröfu hinna síðarnefndu um að þeir gætu komið sér upp kjarnorku til friðsamlegra nota, gegn því að hætta uppbyggingu kjarnorkuvopna. Kínverjar, Rússar og Suður-Kóreumenn, sem tóku þátt í fundinum í Peking, segjast geta sætt sig við að Norður-Kórea ráði yfir kjarnorku til friðsamlegra nota en það geta Bandaríkjamenn og Japanar ekki sætt sig við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×