Erlent

Allir Íslendingarnir komnir fram

Allir Íslendingarnir sem saknað var eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir suðurströnd Bandaríkjanna eru komnir fram heilir á húfi. Rita Godin hafði samband við ættingja sína í gær og lét vita að ekkert amaði að henni og syni hennar. Þau forðuðu sér undan hamförunum og komu sér fyrir í öruggu skjóli á hóteli í norðurhluta Mississippi. Alls var leitað að sex Íslendingum sem hafa nú allir komið fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×