Erlent

Varnargirðing sett upp?

Ríkisstjórn Afganistans hefur fagnað tillögum Pakistana um að reisa varnargirðingu á landamærum ríkjanna til þess að hindra að skæruliðar Al Qaida og talíbana komist yfir landamærin. Afganar halda því fram að fjölmargir liðsmenn hryðjuverkasamtakanna hafi leitað hælis í Pakistan, geri árásir yfir landamærin og flýi svo þangað aftur. Landamæri ríkjanna eru um 2400 kílómetra löng.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×