Erlent

Átök á fyrsta degi brottflutnings

Til lítils háttar átaka kom í gær á milli ísraelskra hermanna og landnema á Gaza-ströndinni en þá hófst brottflutningur þeirra frá svæðinu með formlegum hætti. Landnemarnir hafa frest til miðnættis til að yfirgefa svæðið af fúsum og frjálsum vilja. "Þetta er erfiður en sögulegur dagur," sagði Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels en í gær tóku hermenn að dreifa útburðartilkynningum til íbúa landnemabyggða á Gaza þar sem þeim var gefinn frestur til miðnættis í kvöld að taka föggur sínar og yfirgefa heimili sín. Hermenn munu svo næstu þrjár vikurnar flytja þá með valdi sem ekki eru farnir á morgun. Þegar hermenn komu að hliðum Neve Dekalim, stærstu landnemabyggðarinnar á Gaza, vörnuðu hundruð landnema þeim vegarins. Hermennirnir reyndu þá að komast inn um annað hlið en þar mættu þeim mótmælendur sem brenndu bíldekk, mynduðu varnarveggi og tókust jafnvel á við þá. Bunki af útburðartilkynningum var hrifsaður af þeim og hann brenndur. Í Morag-byggðinni reyndu íbúar sömuleiðis að hefta för hermannanna en ekki kom þó til alvarlegra átaka. Þótt íbúar landnemabyggðanna og stuðningsmenn þeirra hafi mótmælt brottflutningnum kröftuglega í gær er samt talið að þeir muni á endanum gefa sig. Til marks um það hleyptu þeir flutningabílum til og frá svæðunum í gær sem í voru búslóðir fólks. Þegar hafa 8.500 íbúar svæðisins haft sig á brott. Ariel Sharon telur að brottflutningurinn muni auka öryggi Ísraela. Margir telja aftur á móti að með því að leggja byggðir Ísraela á Gaza-ströndinni muni ísraelsk stjórnvöld standa enn fastar á því en áður að halda byggðum sínum á Vesturbakkanum sem eru mun fjölmennari. Þá tilkynnti Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, í gær að þingkosningar myndu fara fram 21. janúar næstkomandi. Talsmaður forsetans sagði ákvörðunina sýna að Palestínumenn væru á öruggri leið til lýðræðis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×