Óvissa um nýja stjórnarskrá 14. ágúst 2005 00:01
Enn standa deilur um nýja stjórnarskrá Íraks en stefnt var að því að leggja hana fyrir þingið í gær. Það gekk þó ekki eftir og var þá ákveðið að fresta þingfundinum þangað til í dag í þeirri von að samkomulag næðist. Óttast þó margir að enn þurfi að fresta því að leggja stjórnarskrána fyrir þingið. Deilt hefur verið um hvernig stjórnkerfi landsins skuli háttað. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort og hvernig landinu með sínum olíuauðlindum verði skipt milli mismunandi trúaarhópa. Nýlegar óskir sjía um sjálfstjórnarsvæði í Mið- og Suður-Írak, þar sem mikið finnst af olíu, hafa kallað á sterk viðbrögð frá súnníum. Sjálfsstjórnarsvæði sjía myndi kalla á að Írak yrði skilgreint sem sambandsríki og það telja súnníar óásættanlegt. Samkvæmt fréttavef BBC var í gær allt útlit fyrir að sjíar hefðu látið undan kröfum súnnía um eitt ríki og samþykkt að landið skuli heita lýðveldið Írak í stað sambandsríkisins Íraks. Önnur atriði virðast vera komin á hreint. Olíumálaráðherra landsins hefur lofað að í stjórnarskránni verði kveðið á um sanngjarna skiptingu á olíutekjunum. Þykir þó ljóst að þau ákvæði verði mjög opin því ráðherrann hefur lýst því yfir að nákvæmar útlistanir á skiptingunni verði að bíða seinni tíma. Enn fremur hafa embættismenn fullyrt að réttur kvenna verði ekki fótum troðinn í nýju stjórnarskránni og þar verði konum gert jafn hátt undir höfði og körlum. Viðræðurnar um íraska stjórnarskrá berast samhliða fréttum um áframhaldandi ofbeldi í landinu. Sex bandarískir hermenn létust í sprengju- og skotárásum í gær og er ljóst að andspyrnumenn ætla ekki að slaka á árásum sínum á bandaríska hernámsliðið þótt landar þeirra semji á þinginu.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira