Depurð í landnemabyggðum 13. ágúst 2005 00:01
Ísraelar hefja á morgun brottflutning fólks frá landnemabyggðum á Gaza þrátt fyrir mikla mótstöðu hvort tveggja meðal landtökumanna og fjölda Ísraela sem vilja halda í byggðirnar. Misjafnt er hvernig íbúar landnemabyggðanna bregðast við yfirvofandi flutningum. "Þetta er ekki síðasti hvíldardagurinn, þeir eiga eftir að verða fleiri," sagði Roni Bakshi á heimili sínu í Neve Dekalim landnemabyggðinni á Gaza. Bakshi og fjölskylda hans er enn ekki farin að pakka eigum sínum og búa sig undir flutningana. Þau segjast ætla að vera þarna lengi enn. Gyðingar halda nú upp á helgidaginn Tisha B'Av, þá fasta þeir í sólarhring til að minnast eyðileggingar mustera í Jerúsalem. Roni segir þetta hafa sérstaka merkingu núna. "Í ár skiljum við hvað eyðilegging musteranna þýðir, og núna er merkingin dýpri en áður því það eru gyðingar sem eru að reka gyðinga frá heimilum sínum og störfum," sagði hann. Fjöldi íbúa landnemabyggða hefur þegar pakkað eigum sínum og er ýmist fluttur eða bíður þess að flytja. Á morgun hefjast hermenn handa við að banka á dyr hjá fólki og segja því að það þurfi að fara. Á miðvikudag byrja þeir svo að flytja þá á brott með valdi sem neita að fara. Kennarinn Aviv Simchi sem flutti frá Vesturbakkanum til Shirat Hayam landnemabyggðarinnar fyrir tveimur mánuðum heldur enn í vonina um að byggðirnar verði látnar standa. "Við treystum því að hátíðirnar færi okkur kraftaverk." Palestínumenn fagna brottflutningunum hins vegar. Stofnendur og helstu leiðtogar Hamas komu í gær saman í Gazaborg og er það í fyrsta skipti í áratug sem þeir eru allir á sama stað á sama tíma. Þeir fögnuðu sigri yfir Ísraelum og sögðust berjast áfram gegn þeim. Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, var líka varaður við því að Fatahhreyfing hans fengi ekki ein að ráða því hvað gerðist eftir brotthvarf landtökumanna auk þess sem leiðtogarnir sögðu að Hamasliðar hefðu og héldu í rétt sinn til að bera vopn. Nasser Yousef, innanríkisráðherra í palestínsku heimastjórninni, fyrirskipaði öryggissveitum Palestínumanna að gæta fyllstu varúðar og vera viðbúnar hverju því sem gæti komið upp á í tengslum við brottflutninginn. Öryggissveitirnar bera meðal annars ábyrgð á því að palestínskir vígamenn ráðist ekki á ísraelska hermenn og landtökumenn meðan á flutningunum stendur.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira