Deilt um ný áfengislög í Bretlandi 10. ágúst 2005 00:01
Drykkjuvenjur Breta hafa orðið til þess að háværar deilur hafa spunnist um nýja áfengislöggjöf sem m.a. er ætlað að blása lífi í efnahag margra af borgum Englands og draga úr ofbeldi á götum úti. Andstæðingar löggjafarinnar segja hana hafa þveröfug áhrif. Til stendur að rýmka mjög afgreiðslutíma kráa og jafnvel leyfa sumum hafa opið allan sólarhringinn, en samkvæmt núgildandi lögum mega barir aðeins vera opnir til ellefu. Með þessum nýju lögum vilja stjórnvöld m.a. koma í veg fyrir að kráargestir streymi allir út á sama tíma með tilheyrandi slagsmálum og ólátum, svipað og borgaryfirvöld í Reykjavík gerðu á sínum tíma. Þá er markmiðið einnig að herja á djammþyrsta ferðamenn og unga Breta, en þannig telja yfirvöld að þau geti lífgað upp á þær borgir sem liðið hafa fyrir lokun stórra vinnustaða eins og verksmiðja. Dómarafélag Bretlands hefur hins vegar varað stjórnvöld við því að slaka á áfengislöggjöfinni og segir að rannsóknir sýni að aukin áfengisneysla leiði til fleiri alvarlegra ofbeldisglæpa. Undir orð dómaranna tekur lögreglan í Bretlandi sem óttast að álagið á fámennar næturvaktirnar verði enn meira. Þá gefa andstæðingar nýju laganna lítið fyrir þá fullyrðingu að rýmri afgreiðslutími leiði til þess að Bretar taki upp drykkjusiði nágranna sinna á meginlandi Evrópu. Þeir segja að Bretar sitji ekki rólegir á kaffihúsum og krám með eitt vínglas heldur svolgri í sig eins mikinn bjór og þeir geti og séu með háreysti og uppsteyt. Þetta sjái menn á þeim Bretum sem heimsæki sumarleyfisstaði í Suður-Evrópu þar sem afgreiðslutími skemmtistaða og kráa er mjög rúmur. Nú þegar hafa níu af hverjum tíu krám í Bretlandi sótt um leyfi til þess að hafa lengur opið, flestir til klukkan eitt, en nýju lögin eiga að taka gildi í lok nóvember.
Erlent Fréttir Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sjá meira