Engin íslensk hrossamafía 4. ágúst 2005 00:01
Íslenska hrossamafían stundar ekki skipulagða glæpastarfsemi eins og þýsk tollayfirvöld héldu fram fyrir nokkrum árum. Eftir margra ára rannsókn hafa þau komist að því að mál sem vakti mikla athygli byggðist allt á misskilningi. Árið 1998 réðust þýsk tollayfirvöld til atlögu gegn hrossainnflytjendum í Þýskalandi. Aðalathyglin beindist að íslenska hestinum þar sem allir hestar frá Íslandi voru, samkvæmt tollapappírum, verðlagðir á nánast sama verði. Margir af þekktustu hestamönnum Íslands voru sakaðir um tollasvik og stefndu Þjóðverjarnir að því að fá fólkið a.m.k. dæmt til himinhárra fjársekta fyrir skipulagða glæpi. Þeir töldu víst að samsæri væri um að komast frá skattgreiðslum vegna hestanna. Málarekstrinum hefði lokið með fjöldagjaldþroti íslenskra hrossabænda fyrir utan þá hneisu sem málið hefði orðið - og varð raunar þar sem þýsk tollayfirvöld voru yfirlýsingaglöð í meira lagi. Hrossaútflutningur héðan stöðvaðist og er enn í minna lagi frá því fyrir upphlaupið. Í dag staðfestu Þjóðverjarnir að málinu væri lokið. Eftir miklar rannsóknir og íhlutun þýska fjármálaráðuneytisins rann upp fyrir tollayfirvöldum að hér væri ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða. Íslensku hrossabændurnir reyndust ekki jafn bíræfnir og talið var heldur voru þeir í raun frekar rænulausir og fylgdu gömlum sið sem rekja má til vinsællar þýskrar barnamyndar. Ferien auf dem Immenhof heitir myndin frá 1959 og þar sáu Þjóðverjar íslenska hestinn í fyrsta sinn. Þegar flytja átti þá héðan til að nota í myndinni vissi enginn hvernig fylla átti út tollskýrslur eða verðsetja hrossin. Því var fundin upp reikniaðferð til að komast að lágmarksverði, sem æ síðan hefur verið fært samviskusamlega til bókar á tollaskýrslum. Það kemur væntanlega ekki á óvart að hross árið 1959 og verðlaunahestar fjórum áratugum síðar eru ekki sambærilegur varningur fyrir tollara. Lágmarksverð á ekki við stóðhesta. Fyrir vikið kom upp undarleg aðstaða hjá þýska tollinum og þess vegna taldi tollurinn hrossamafíu að verki. Þeir komust hins vegar að lokum að því að ekki væri um viljaverk að ræða og Íslendingarnir verða því aðeins að greiða skattaviðbót fyrir þrjú undanfarin ár, en engar sektir eða sæta annarri refsingu. Upphæðin nemur, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, á milli sex og sjö milljónum króna sem deilast niður á um sextíu mál. Þýsk yfirvöld munu fús að ræða þægilegt greiðslufyrirkomulag. Að auki á að setja saman reglugerð um hvernig beri að tollskrá flutning dýra á milli landa svo að misskilningur af þessu tagi komi ekki upp á ný. Þegar málið kom upp á sínum tíma stóð heimsmeistaramót sem hæst í Þýskalandi og finnst hestamönnum viðeigandi að málinu ljúki meðan á mótinu stendur í Svíþjóð.
Fréttir Innlent Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira