Fordæmir vísindaveiðar Íslendinga 1. ágúst 2005 00:01
Ian Campbell, umhverfismálaráðherra Ástralíu, vandar Íslendingum ekki kveðjurnar. Hann fordæmdi í morgun vísindaveiðar Íslandinga á hrefnum og sagði að sér blöskruðu veiðarnar. Þær væru rangar og brytu í bága við vilja yfirgnæfandi meirihluta alþjóða hvalveiðiráðsins. Campbell sagði vísindaveiðar ekki réttlætanlegar undir neinum kringumstæðum; löngu væri búið að sýna fram á að ekki væri þörf á að drepa hvali til að rannsaka þá, og að halda öðru fram væri klárlega rangt. Ráðherrann sagði þessa skammarlegu hegðun Íslendinga ganga fram af Áströlum og hann undraðist að Íslendingar kysu að halda vísindaveiðum áfram þrátt fyrir að meirihluti hvalveiðiráðsins hefði lýst viðbjóði sínum á þeim á síðasta ársfundi. Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, segir að erfitt sé að tjá sig um ummæli ráðherrans þar sem hann vill ekki horfast í augu við staðreyndir. Hann segir það rangt hjá ráðherranum að hægt sé að rannsaka hvali án þess að veiða þá og í öðru lagi er það líka rangt að sérstaklega hafi verið fjallað um veiðarnar á fundinum. Hann sagði einnig að erlendir umhverfisráðherrar fjölluðu oft um hvalveiðar til þess að draga athyglina frá vandamálum heima fyrir. Árni sagði Ástralina hafa verið í vandræðum með útblástursmál, kolavinnslu og benti á að ráðherrann ætti að huga að kengúrunum því það væri mjög umdeilt hvernig með þær væri farið. Árni taldi ekki ástæðu til að bregðast við ummælum hans og hann efast um að það sé eitthvað unnið með því að sýna viðbrögð.
Fréttir Innlent Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Teknar úr umferð fyrr en til stóð Innlent Fleiri fréttir Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Sjá meira