Um 9000 manns í Eyjum 30. júlí 2005 00:01
Hátíðarhöld þessa verslunarmannahelgi virðast að mestu leyti fara vel fram um allt land. Nóttin var með rólegasta móti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þó voru tveir menn teknir með lítilræði af fíkniefnum og gistu þeir fangageymslur lögreglunnar. Öðrum hefur nú verið sleppt en ástæða þótti til að rannsaka mál hins aðilans betur og er hann því enn í haldi lögreglu. Að sögn mótshaldara hefur fólksstraumurinn til Eyja haldið áfram í dag, bæði með flugi og Herjólfi. Í Herjólfsdal eru nú um níu þúsund manns og hið fínasta veður fyrir utan smá súld. Fjögur minniháttar fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt og tveir voru fluttir á slysadeild eftir slagsmál. Að öðru leyti var nóttin róleg að sögn lögreglunnar í bænum og hefur það sama verið uppi á teningnum í dag. Um sex þúsund manns eru á unglingalandsmóti UMFÍ í Vík í Mýrdal og þar var allt með kyrrum kjörum í nótt. Á Kirkjubæjarklaustri eru um þrjú þúsund manns á óskipulagðri útihátíð og þurfti lögreglan á Vík að hafa töluverð afskipti af fólki þar vegna ölvunarláta en allt hefur verið með ró og spekt í dag. Á bindindismóti í Galtalæk eru þrjú þúsund og fimm hundruð manns á væðinu og að sögn Sævars Finnbogasonar, framkvæmdastjóra mótsins, var nóttin róleg og menn almennt ánægðir með stemmninguna. Hann segist búast við að fólki fjölgi enn frekar í kvöld, enda sól og 18 stiga hiti á svæðinu. Um 500 manns eru á Álfaborgarséns á Borgarfirði Eystri og þar fóru hátíðarhöld vel fram að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum.
Innlent Menning Mest lesið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Lífið Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Lífið Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Lífið Connie Francis er látin Lífið „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ Lífið „Búið ykkur undir bragðsprengju í munni“ Lífið samstarf Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið Fleiri fréttir Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Sjá meira