Umkringdu barnaskóla 14. júlí 2005 00:01
Stigamenn stráfelldu 76 manns í þorpi í norðurhluta Keníu í fyrradag. Talið er að ættbálkaerjur séu orsök ódæðanna. Íbúar þorpsins Turbi í Norður-Keníu áttu sér einskis ills von á þriðjudaginn þegar hundruð stigamanna umkringdu barnaskóla bæjarins og nálæg hús og hófu skothríð. Þegar yfir lauk lágu 76 manns í valnum, þar af 22 börn sem voru á leiðinni í skólann. Lík lágu eins og hráviði á götum bæjarins, mörg þeirra í skólabúningum. Í Turbi býr einkum fólk af Gabra-ættbálknum. Talið er að illvirkjarnir hafi verið úr Borana-ættbálknum sem býr á eþíópísku landamærunum en þessir flokkar hafa lengi deilt um vatnsból og bithaga á svæðinu. Vera má að drápin hafi verið framin í hefndarskyni vegna fyrri árása Gabra-manna. Þegar morðingjarnir höfðu lokið sér af tóku þeir með sér nautgripi, geitur og úlfalda í eigu bæjarbúa. Lögregla leitar þeirra nú ákaft. Að vonum ríkir mikill ótti á meðal bæjarbúa í Turbi en margir þeirra flýðu til nágrannaborgarinnar Marsabit í kjölfar drápanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Fleiri fréttir Umfagnsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Einn látinn eftir alvarlegt lestarslys í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Sjá meira