Fleiri skriður gætu fallið 3. júlí 2005 00:01
Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna aurskriðna en vonast er til að hægt verði að opna hann seint í kvöld. Að minnsta kosti sjö bílar voru fastir í dag á milli skriðna og er óttast að fleiri skriður geti fallið. Tæplega hundrað manns flúðu tjaldstæðið á Höfn í Hornafirði vegna vonskuveðurs og leituðu skjóls í íþróttahúsinu. Rigningar og vonskuveður hefur verið eystra í dag. Við Mýrarbotna á Fagradal lét jörð undan og flæddu aurskriður yfir veginn a.m.k. á tveimur stöðum þannig að í það minnsta sjö bílar voru fastir á milli skriðanna um nokkurra klukkustunda skeið. Búið er að opna leið fyrir bílana út. Þá hefur sjónvarps-, síma- og netsamband truflast eða lagst af á Austurlandi vegna bilunar og vegna aurskriðanna en sökum veðurs hefur viðgerð tafist. Menn búast allt eins við fleiri skriðum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er vonast til að hægt verði að opna veginn um Fagradal um eða upp úr klukkan níu í kvöld. Vegagerðarmenn þurftu að rjúfa veginn og setja ræsi í hann. Hjá Vegagerðinni segja menn þó að ökumenn verði að sýna sérstaka aðgát á leið um Fagradal eftir að vegurinn verður opnaður því ekki er öruggt að fleiri skriður falli ekki. Þá setti veðurhamurinn strik í reikninginn hjá ferðamönnum á Humarhátíðinni á Höfn í Hornafirði. Lögregla, björgunarsveitir og Rauði krossinn aðstoðuðu fólkið við að taka niður tjöld og koma því í skjól í íþróttahúsinu og um hádegið voru þar tæplega hundrað manns en allir eru komnir til síns heima núna. Þá er enn unnið að rannsókn nauðgunarmáls sem upp kom í fyrrinótt á Höfn. Einn maður var handtekinn vegna málsins en honum var sleppt eftir skýrslutöku. Í Ólafsvík gekk nóttin vel fyrir sig miðað við nóttina á undan, enda hafði gestum Færeyskra daga snarfækkað eftir vonskuveður á svæðinu. Þar er enn unnið að rannsókn nauðgunarmáls sem upp kom en grunur leikur á að 15 ára stúlku hafi verið byrlað ólyfjan og henni nauðgað.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira