Innlent

Meta íslensku þjóðvegina

Rannsóknir verða gerðar á íslenska vegakerfinu í sumar út frá alþjóðlegum vegaöryggisstaðli EuroRAP. "Þetta er alþjóðlegur öryggisstaðall sem byggir á stöðluðu kerfi um mat á öryggi vega Hann byggist á því að meta umhverfi, mannvirki og annað sem tengist öryggi vegarins," segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB. Fulltrúar frá EuroRAP koma hingað til lands og hafa umsjón með athugunum. Til að byrja með verða gerðar athuganir á helstu vegum í um 50 km radíus frá höfuðborgarsvæðinu. "Hugmyndafræðin með EuroRAP er sú að við sem neytendur getum haft hugmynd um aðstæður á þeim vegum sem við keyrum á, þetta er því verkfæri fyrir hinn almenna neytanda og eins viðmiðunarstaðall fyrir vegagerðarmenn, annars vegar milli svæða og hins vegar milli landa," segir Runólfur. Íslenskum vegum verða síðar gefnar stjörnur frá einni upp í fjórar eftir öryggi út frá EuroRAP. Fyrstu niðurstöður rannsóknanna verða birtar í haust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×