Eiturefnaleki í Lagarfossi 12. júní 2005 00:01
Flutningaskip Eimskipa, Lagarfoss, fékk að halda för sinni til Íslands áfram eftir komist var fyrir leka í ammóníaksgámi sem upp kom í skipinu aðfaranótt laugardags. Skipið var statt undan ströndum Skotlands þegar lekinn kom upp og var strandgæslan í Aberdeen þegar látin vita. Skipstjórinn stöðvaði ferð skipsins meðan áhöfnin fylgdist með lekanum. Hann hætti sjálfkrafa nokkrum klukkustundum síðar að sögn Eyþórs Ólafssonar, öryggisstjóra Eimskipa. Ekki fékkst staðfest hvort eiturefnasérfræðingar á vegum skosku strandgæslunnar komu út í skipið til þess að fylgjast með lekanum, þar sem ekki náðist í Lagarfoss í gær. Talið er að loki hafi opnast á gámi með þeim afleiðingum að ammóníak flæddi út í andrúmsloftið. Grunsemdir vöknuðu um lekann hjá áhöfn skipsins eftir að ammóníaklykt barst út í andrúmsloftið. Að sögn Eyþórs voru öryggisráðstafanir gerðar í kjölfarið en um borð eru efnagallar og öndunarbúnaður fyrir áhöfn. Ekki kom til tals að rýma skipið. Lagarfoss er væntanlegur til landsins snemma dags í dag en ákveðið var að beina skipinu að Grundartangahöfn þar sem búist er við að vindátt verði hagstæð. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins tekur á móti skipinu og sjá tíu eiturefnakafarar til þess að alls öryggis verði gætt við losun gámsins. Ekki er vitað með vissu hversu mikið ammóníak lak en Eyþór telur líklegt að það hafi numið nokkrum tugum kílóa. Ammóníak er eiturefni og getur verið hættulegt ef mikið magn þess losnar út í andrúmsloftið en Eyþór segir enga hættu hafa verið á ferðum af völdum lekans í Lagarfossi. Mun meira magn þurfi að losna til þess að hafa áhrif á umhverfið. Ammóníak er kæliefni og mikið notað hérlendis, meðal annars í frystihúsum.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira