Æfir vegna seinkunar á flugi 12. júní 2005 00:01
Erlendir ferðamenn, sem eru strandaglópar á Keflavíkurflugvelli, eru æfir yfir meira en sólarhringsseinkun á flugi Icelandair til San Francisco. Bilun í hreyfli veldur seinkuninni en ekki reyndist unnt að útvega aðra vél til að fljúga með mannskapinn. Samkvæmt áætlun átti flugvél Icelandair að fljúga til San Francisco síðdegis í gær. Bilun kom hins vegar upp í ventli sem stýrir flæði inn í hreyfil sem olli því að ekki var hægt að fljúga vélinni. Reynt var að gera við hreyfilinn en senda þurfti eftir varahlut sem kom svo í tvennu lagi til landsins. Gert er ráð fyrir því að vélin fari til San Francisco klukkan hálftvö í nótt. Erlendir ferðamenn eru ósáttir við seinkunina og kvarta yfir upplýsingaskorti. Eric Smiley, einn þeirra sem áttu bókað far með vélinni, segist hafa beðið og beðið. Eftir tveggja tíma seinkun hafi farþegarnir fengið að vita að fjögurra tíma seinkun yrði á fluginu og svo átta og tíu tíma. Síðan hafi hann farið upp á hótel um miðja nótt í nokkra tíma en svo komið aftur og þá hafi liðið átta tímar án þess að farið yrði af stað. Þetta hafi verið mjög óþægilegt og skrítið. Stacy Smith, sem einnig var á leið til San Francisco, segir að það hafi komið verst við farþegana að þeir hafi ekki fengið neinar upplýsingar. Í gærkvöldi hafi hópnum ekki verið tilkynnt að ekki yrði farið þá heldur hafi hann komist að því þar sem upplýsingar á brottfararskjá hafi breyst. Fólk hafi litið á skjáiinn og tíminn hafi breyst frá 02.00 í 13.30. Ekki hafi verið vel að málum staðið. Aðspurður hvers vegna ekki hafi verið fengin önnur vél til að flytja fólkið vestur um haf segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, að menn hafi ætlað sér að gera við bilunina á skemmri tíma en raunin varð. Þegar komið hafi í ljós að töfin yrði veruleg þá hafi verið reynt að finna flugvélar en þær hafi ekki verið á lausu, en talað hafi verið nánast annað hvert flugfélag í heiminum. Guðjón segir ekki auðvelt að létta fólki lífið í tilvikum sem þessum því fólk verði pirrað. Fólki hafi venju samkvæmt verið gefið að borða og farið með það í Bláa lónið og upp á hótel í nótt, en tafir sem þessar séu vissulega pirrandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira