Neitar að ósamræmi sé í gögnum 11. júní 2005 00:01
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir aðspurður að engar sérstakar ástæður séu fyrir því að stornunin hafi ekki í lok apríl hafið rannsókn á hæfi Halldórs Ásgrímssonar við sölu ríkisbankanna, þegar stofnunin fékk upplýsingar um hugsanlegt vanhæfi hans. Stofnunin hafi verið að vinna í þessu máli síðan þá. Sigurður segir einnig að þrátt fyrir að þessar upplýsingar um eignarhlut Skinneyjar-Þinganes í Hesteyri hafi komið fram í fréttum Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og í úttekt Frjálsrar verslunar í nóvember og desember 2002, hafi Ríkisendurskoðun ekki haft þær upplýsingar undir höndum. Sigurður segir því ekki rétt að ósamræmi sé í gögnum Ríkisendurskoðunar, eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær. Þó svo að samantekt Ríkisendurskoðunar hafi verið dagsett 7. júní sé hún spurningar og svör sem komu fram á fundi með fjárlaganefnd 28. apríl. Það hafi svo verið í kjölfar þess fundar sem upplýsingar komu fram sem birtast á minnisblaði, einnig dagsett 7. júní, sem leiðir til þess að Ríkisendurskoðun ákveður að rannsaka hvort Halldór Ásgrímsson hafi verið vanhæfur til að taka þátt í sölu ríkisbankanna vegna eigendatengsla hans og fjölskyldu hans í gegnum Hesteyri, sem framkvæmdanefnd var ekki gefin upp. Eins og segir í minnisblaði Ríkisendurskoðunar gerði Kristinn Hallgrímsson grein fyrir fjárfestum í S-hópnum fyrir framkvæmdanefnd og sagði Hesteyri í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Síðan segir í minnisblaðinu að þessi fullyrðing sé "reyndar ekki alveg nákvæm", því þó svo það hafi áður verið í eigu kaupfélagsins hafi Hesteyri verið notað í tengslum við kaup Kaupfélagsins og Skinneyjar-Þinganess hf. á stórum hluta í Keri hf., eða 22,53 prósentum, þann 16. ágúst 2002 en nafnvirði bréfanna hafi verið 223 milljónir. Ker var einn af leiðandi fjárfestum S-hópsins í undirbúningi að kaupum á Búnaðarbankanum, en Hesteyri seldi hlut sinn í Keri um miðjan nóvember 2002.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira