Innlent

Kraftur í allt hjálparstarf

"Það skiptir stórkostlegu máli að losna við þennan skuldabagga og þetta hefur þau áhrif að það færist kraftur í allt hjálparstarf," segir Þórir Guðmundsson hjá Rauða krossi Íslands. Hann segir að Rauði krossinn beiti sér mikið fyrir hjálparstarfi alnæmissjúkra í sunnanverðri Afríku og að peningar leysi lítinn vanda í þeim efnum en ljóst sé að niðurfelling skulda sé sem vítamínsprauta á allt umhverfið. "Þetta eru gleðilegar fréttir og ég fagna þeim."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×