Innlent

Maður vopnaður loftbyssu

Lögreglaní Reykjavík fékk í um þrjúleytið gær tilkynningu um mann, vopnaðan skammbyssu, fyrir utan fjölbýlishús í Austurborginni. Í ljós kom að maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, var ekki vopnaður skammbyssu heldur loftbyssu og ógnaði hann tveimur mönnum í bíl. Maðurinn var færður í vörslu lögreglu til yfirheyrslu. Hann veitti enga mótspyrnu þegar lögreglu bar að garði. Loftbyssur eru ólöglegar hér á landi og að sögn lögreglunnar er ómögulegt fyrir óvanan mann að greina muninn á loftbyssum og öflugum skammbyssum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×