Góð þátttaka í Kvennahlaupi 11. júní 2005 00:01
Hátt í tuttugu þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupi Íþróttasambands Íslands á yfir níutíu stöðum á landinu í dag. Langflestar eða um fimm þúsund hlupu í Garðabænum. Það ríkti mikil stemning á Garðatorgi í Garðabæ þar sem hitað var upp fyrir Kvennahlaupið. Bláu bolirnir voru allsráðandi og konur á öllum aldri mættar á svæðið til að láta ekki sitt eftir liggja. Yfirskrift hlaupsins í ár var Áfram stelpur! og var tilgangurinn að vekja athygli á mikilvægi þess fyrir konur og ungar stúlkur að eiga sér heilbrigðar og sterkar fyrirmyndir. Þátttakendur gátu valið um að fara 2, 5, 7 eða 9 kílómetra, annaðhvort hlaupandi, gangandi, á línuskautum eða í kerrum. Aðstandendur kvennahlaupsins voru ánægðir með daginn. Gígja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Kvennahlaupsins, segir að það hafi sýnt sig í gegnum árin að hlaupið sé gríðarleg hvatning fyrir konur, þetta sé almenningsíþróttaviðburður þar sem konur geti tekið þátt á sínum forsendum og farið á sínum hraða. Þátttakendafjöldinn hafi sýnt að þetta henti konum. Og það var víðar hlaupið en á höfuðborgarsvæðinu. Á Egilsstöðum tók fjöldi kvenna þátt í hlaupinu og þar var góð stemning. Veðurskilyrði voru með besta móti á flestum stöðum landsins og því tilvalið fyrir konur að njóta útiverunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira