Hæfi Halldórs í rannsókn 10. júní 2005 00:01 "
Það er verið að skoða þessi mál með tilliti til eignar forsætisráðherra, ættartengsla og þess hvernig þetta spilar saman við þá atburðarás sem átti sér stað," segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að rannsaka hvort Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sem jafnframt á sæti í ráðherranefnd um einkavæðingu, hafi verið vanhæfur til að fjalla um söluna á Búnaðarbankanum vegna eignar ráðherrans og fjölskyldu hans í Skinney-Þinganesi. Aðspurður sagði Sigurður það fyrst og fremst umræðu á fundi fjárlaganefndar á miðvikudag sem hafi orðið til þess að ákveðið var að taka málið fyrir. "Það voru ákveðnir nefndarmenn sem voru að vekja athygli á málinu og að þetta væri eitthvað sem þyrfti að svara og fá nánari upplýsingar um. Nú er verið að afla upplýsinga og draga fram það sem telst nauðsynlegt um eignarhluti og það hvernig þetta tengist saman," sagði Sigurður. Hann sagðist ekki vita hversu langan tíma athugunin tæki né gat hann svarað því hvaða áhrif yrðu af því ef forsætisráðherra yrði talinn vanhæfur í málinu. Sigurður Líndal lagaprófessor segir að erfitt sé að sjá hvernig slíkt mál myndi þróast ef forsætisráðherra yrði talinn vanhæfur en hér væri fyrst og fremst verið að vísa til hæfisskilyrða stjórnsýslulaga. "Fræðilega séð gæti það leitt til vantrausts á ráðherra en það er Alþingis að ákvarða viðbrögð. En í raun er það þannig að hver sá sem teldi á sig hallað gæti höfðað mál til ógildingar sölunni. Ríkisendurskoðun er ekki dómstóll," segir Sigurður.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira