Segist læsa prestinn úti 10. júní 2005 00:01 "
Við höfum fram að þessu ekki haft löngun til að skipta um skrár í skrifstofum í safnaðarheimilinu en teljum okkur ekki hafa neina skyldu til að útvega sóknarpresti vinnuaðstöðu," segir Matthías G. Pétursson, formaður sóknarnefndar Garðasóknar en Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðabæ, ætlar að virða að vettugi öll fyrirmæli biskups um tilflutning í starfi ef til þeirra kemur. Þetta kemur fram í bréfi sem Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hans Markúsar, hefur ritað biskupi Íslands en deilur hafa að undanförnu staðið í prestakallinu vegna ágreinings milli sóknarprestsins og formanns og varaformanns sóknarnefndarinnar. Matthías segir Hans Markús vera búinn að mála sig út í horn. "Það kemur skýrt fram í reglum áfrýjunarnefndarinnar að biskupi ber að fara eftir þeim og færa hann til í starfi. Ef því verður haldið fram að áfrýjunarnefndin hafi ekki völd í málinu hlýtur biskup að fá umboð frá ráðherra til að hlutast til um málið. Ef hann neitar að verða við þeim tilmælum verðum við að grípa til aðgerða,"segir Matthías. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hans Markúsar segir að samkvæmt lögum hafi áfrýjunarnefndin aðeins völd þar sem hið kirkjulega vald nær til. "Hans Markús er skipaður af ráðherra og aðeins hann getur leyst hann frá störfum. Þá eru engar málefnalegar ástæður fyrir því að aðalsafnaðarfundur hafi ekki enn verið haldinn. Því hefur verið haldið fram af starfsmanni biskupsstofu að ástæða þess sé málarekstur fyrir áfrýjunarnefndinni en svo er ekki því málsaðilar þess máls eru einstaklingar en ekki sóknarnefndin. Svo er það enn og málsaðilum er ekki skipt út eins og í fótboltaleik. Þetta mál er dæmi um einelti af verstu gerð," segir Sveinn Andri.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira