Innlent

Verða að gera nýtt umhverfismat

Alcoa verður að kosta nýtt umhverfismat á álverksmiðju sinni í Fjarðabyggð eftir að Hæstiréttur ógilti úrskuð umhverfisráðherra í dag. Náttúruverndarsinnar fagna en Alcoa-menn segja þetta engin áhrif hafa á framkvæmdir. Umhverfisráðherra tekur í sama streng. Forsaga málsins er sú að deilt var um lögmæti umverfismats og veitingu starfsleyfis til álversins á Reyðarfirði. Skipulagstofnun komst að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti nýtt umhverfismat þegar Alcoa tók verkefnið yfir en Norsk Hydro hafði áður komið að því. Umhverfisráðherra staðfesti þessa niðurstöðu sem hæstiréttur ógilti í dag. Það var Hjörleifur Guttormsson sem höfðaði málið og Atli Gíslason lögmaður rak það fyrir rétti. Hann kvaðst í dag verulega ánægður með niðurstöðuna og taldi ekki lagalegar forsendur fyrir starfsleyfi Alcoa. Ekki var Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, sammála því þegar fréttastofan náði tali af honum skömmu fyrir fréttir. Hann sagði framkvæmdaleyfið standa þar sem það væri ekki afturkallanlegt og því héldu framkvæmdir áfram. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra segir dóminn vonbrigði en segir hann byggja á formsatriðum. Aðspurð hvort þetta sé ekki áfellisdómur yfir vinnubrögðum ráðuneytisins segist hún ekki vita hvort nota eigi svo stór orð en þarna hafi í það minnsta ekki verið rétt að verki staðið samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Náttúruverndarsinnar telja álver Alcoa menga meira en álverið sem Norsk Hydro hugðist byggja og eru á því að ekki sé beitt bestu tækni. Sigríður Anna vill þó ekki meina að verið sé að slaka á umhverfisstöðlum því líta verði á heildaráhrifin. Hún segir að nú muni fara fram nýtt mat á umhverfisáhrifum. Tómas Már segir Alcoa fara eftir svokölluðum Parcom-stöðlum Evrópusambandins um bestu fáanlegu tækni við álvinnslu. Þrátt fyrir nýtt umhverfismat er óvíst að málinu sé lokið því Atli Gíslason segir náttúruvini fylgjast með viðbrögðunum og kanna frekari málarekstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×