Tíu þúsund vegabréf í júní 9. júní 2005 00:01
Mikið álag hefur verið hjá Útlendingastofnun undanfarið vegna vegabréfaútgáfu. Þann 9. júní síðastliðinn höfðu 3000 vegabréf verið gefin út, og ef fram heldur sem horfir verða yfir tíu þúsund vegabréf gefin út í mánuðinum, sem er einsdæmi. Í júní í fyrra voru gefin út rúmlega sex þúsund, sem þótti mjög mikið þá. Flestir umsækjendanna eru á leið til Bandaríkjanna. "Afgreiðslan er stútfull alla daga af fólki sem er pirrað yfir því að þurfa að bíða," sagði Elín Inga Arnórsdóttir, verkstjóri vegabréfadeildar. "Það hefur verið aukning hjá okkur alla mánuði ársins 2005. Húsnæðið og tölvukerfið hjá okkur býður ekki upp á meiri afköst." Krónan hefur verið mjög há gagnvart Bandaríkjadal undanfarið og því ódýrt að ferðast þangað og hagkvæmt að versla þar. Einnig mun bandaríska vegabréfaeftirlitið frá og með 26. júní gera kröfu um að öll vegabréf hafi tölvulesanlega rönd. Nú eru því síðustu forvöð að útvega ný vegabréf fyrir þann tíma. Almennur afgreiðslutími vegabréfaumsókna er tíu virkir dagar. Hjá Flugleiðum fengust þær upplýsingar að ferðalög Íslendinga til Bandaríkjanna hefðu aukist um 50 prósent síðan í fyrra. "Ég vil brýna alla sem ætla til Bandaríkjanna að útvega sér gild vegabréf með góðum fyrirvara," sagði Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða. Fylgjast á vel með því að farþegar komist ekki um borð með úrelt vegabréf en flugfélög verða sektuð um rúmar 200.000 krónur fyrir hvern slíkan farþega. Tolla- og landamæraeftirlit Bandaríkjanna hefur gefið það út að farþegar með vegabréf án tölvurandar geti ekki vænst þess að fá neinar undanþágur eftir 26. júní. Öll vegabréf gefin út á Íslandi eftir 1. júní 1999 hafa tölvurönd og duga því til að komast inn í Bandaríkin. Ennfremur hefur verið vandkvæðum bundið að komast til Bandaríkjanna á eldri vegabréfum og eru dæmi þess að Íslendingar með gömul vegabréf hafi verið teknir í yfirheyrslur, jafnvel í margar klukkustundir. Bandaríkin eru fyrsta ríkið í heiminum sem gerir kröfu um tölvurönd á vegabréfum, en búast má við því að fleiri lönd fylgi í kjölfarið áður en langt um líður.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Erlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira