Innlent

Nýtt svið fyrir Þjóðleikhúsið

Þjóðleikhúsið og Landsbankinn hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á nýju sviði Þjóðleikhússins. Sviðið á að heita „Kassinn“ og verður til húsa á jarðhæð íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar að Lindargötu 7. Landsbankinn mun standa straum af kostnaði við uppbyggingu Kassans, svo sem kaupum á nýjum hljóð- og ljósabúnaði. Samningurinn er til sex ára. Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sagði við undirritunina í dag að hann hefði alltaf dreymt um að verða leikari. Hann hafi leikið á yngri árum, síðast í 6. bekk þegar hann lék í Pilti og stúlku. Hann útilokaði því ekki að hann fengi kannski að leika eitthvað á vegum nýja samstarfsaðilans, en það yrði þá að vera vegna verðleika hans sem leikari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×