Brottflutningur frá Gasa löglegur 9. júní 2005 00:01
Brottflutningur Ísraelsmanna frá Gasa og fjórum stöðum á Vesturbakkanum er löglegur samkvæmt dómi hæstaréttar Ísraels í dag. Andstaða við brottflutninginn fer þó stigmagnandi meðal almennings í Ísrael. Einn stærsti ágreiningur Palestínumanna og Ísraela eru landnemabyggðir gyðinga inni á svæðum Palestínumanna. Á Gasasvæðinu búa níu þúsund gyðingar innan um eina og hálfa milljón Palestínumanna og njóta öflugrar verndar ísraelskra hersveita. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur heitið því að landnemabyggðirnar á Gasasvæðinu verði lagðar niður og að fólksflutningar hefjist í ágúst. Úrskurður hæstaréttar Ísraels í morgun ætti að tryggja að sú áætlun standist en fyrir rétti var deilt um hvort brotið væri á réttindum þeirra gyðinga sem þurfa að flytja frá svæðinu. Dómsúrskurðurinn kemur í kjölfar skoðanakannana sem sýna að stuðningur við fyrirætlanir Sharons minnkar stöðugt. Til að byrja með voru 70 prósent Ísraela hlynntir brottflutningi landnema af Gasasvæðinu en sú tala er komin undir 50 prósent. Í kjölfar aðgerða herskárra Palestínumanna á Gasa hafa raddir þeirra sem eru mótfallnir brottflutningi orðið æ háværari og óttast er að ofbeldi færist í aukana. Margir landnemanna álíta Vesturbakkann og Gasasvæðið sína jörð samkvæmt biblíulegum skilningi og brottflutningur geri ekkert annað en að umbuna palestínskum hryðjuverkamönnum. Borgarstjórinn í Gasa, Avner Shimoni, fullyrti að niðurstaða Hæstaréttar breytti engu því ísraelska þjóðin væri andvíg brottflutningi sem þýddi að ísraelska þingið yrði að breyta áætlunum sínum.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira