Innlent

Kjalvegur opnaður á morgun

Kjalvegur verður opnaður fyrir umferð á morgun samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Leiðin inn í Kverkfjöll var opnuð í dag en helstu hálendisvegir landsins eru óðum að verða færir þessar vikurnar. Þannig var Kaldadalsleið opnuð í síðustu viku og þrjár vikur eru frá því leiðin inn í Landamannalaugar varð fær. Þá er stefnt að því að Sprengisandsleið verði opnuð í næstu viku, eða fimmtudaginn 16. júní, og sömuleiðis báðar Fjallabaksleiðir, nyrðri og syðri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×