Innlent

Friðargæsluliðar til Afganistan

Íslensku friðargæsluliðarnir sem ákveðið hefur verið að senda til Afganistan munu halda utan um miðjan september. "Við munum senda átta friðargæsluliða til Norður-Afganistan í samstarfi við Norðmenn og Finna, og aðrir átta verða sendir til Vestur-Afganistan í samstarfi við Litháa og Dani," segir Arnór Sigurjónsson skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar hjá utanríkisráðuneytinu. Íslensku friðargæsluliðarnir munu notast við fjóra sérútbúna Nissan Patrol jeppa við störf sín. "Það er tvennt sem gerir framlag okkar sérstaklega mikilvægt. Annars vegar sérútbúnu jepparnir sem friðargæsluliðarnir munu nota, því við búum yfir kunnáttu í notkun slíkra ökutækja við erfiðar aðstæður. Í öðru lagi er það hlutverk endurreisnar-og uppbyggingarsveitanna en þær aðstoða við samræmingu, skipulagningu, uppbyggingu og mannúðaraðstoð á viðkomandi svæðum, jafnframt því sem viðvera þeirra er til þess fallin að efla traust milli stjórnvalda og heimamanna," segir Arnór. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að halda friðargæsluliðinu úti í eitt ár í Afganistan. Verið er að ganga frá því hvaða menn munu fara utan. Friðargæsluliðarnir munu verða einkennisklæddir og bera vopn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×