Líffæragjafir afar mikilvægar 7. maí 2005 00:01
Fyrsta íslenska konan sem fékk grætt í sig hjarta biður fólk að hugleiða vandlega þá þýðingu sem líffæragjafir geta haft fyrir aðra. Fyrir fimmtán árum var hún í hjólastól og beið dauða síns. Í dag lifir hún eðlilegu lífi. Eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær sýnir ný íslensk rannsókn sem greint er frá í Læknablaðinu að vaxandi tregða er meðal fólks til að leyfa að líffæri séu tekin úr ástvinum sem úrskurðaðir hafa verið heiladauðir til að nota til ígræðslu. Engin algild skýring er á því þar sem fólk er ekki spurt um ástæður þess að það hafnar slíkri beiðni. Á tíu ára tímabili veittu sextíu prósent þeirra sem leitað var til slíkt leyfi sem er lægra hlutfall en annars staðar á Norðurlöndunum. Og hlutfallið fer lækkandi. Greinarhöfundar benda á leiðir til úrbóta, svo sem markvissa fræðslu meðal ungs fólks og opinbera skrá yfir viljuga líffæragjafa til að mynda hjá Landlækni. Markviss fræðsla myndi ennfremur draga úr því tilfinningalega álagi sem aðstandendur verða fyrir þegar þær aðstæður skapast að líffæragjöf kemur til álita. Æskilegast væri að hver og einn hugleiddi afstöðu sína til líffæragjafa og ræddi við aðstandendur sína. Elín Birna Harðardóttir var fyrsta íslenska konan til að þiggja nýtt hjarta. Það var árið 1990. Hún segir biðina hafa verið skelfilega því þegar hjarta er þegið þurfi líffæragjafinn að vera dáinn. Maður þurfi samt að læra að hugsa ekki þannig. Elín Birna hvetur aðstandendur sem standa í þessum sporum að hugsa sig vel um þrátt fyrir að kringumstæðurnar séu erfiðar. Hún segir að aldrei líði sá dagur að hún hugsi ekki til konunnar sem dó og hafði samþykkt að taka mætti úr henni líffæri. Það samþykki hafi bjargað lífi sínu.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira