Innlent

Nágrannar skemmta sér

Íbúar Laugarneshverfisins í Reykjavík koma saman í dag á milli klukkan tvö og fjögur í og við Laugarneskirkju undir kjörorðinu "Laugarnes á ljúfum nótum!" í þriðju vorhátið hverfisins. "Þetta snýst um að efla félagsauðinn í okkar góða hverfi. Þetta er í raun yfirlýsing hverfisbúa um að vera samferða í lífinu og raunverulegir nágrannar," segir séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju. Þorvaldur Gylfason flytjur dægurperlur, bílskúrssveitir hverfisins halda tónleika í safnaðarheimilinu, auk þess sem keppt verður í hjólastóla- og reiðhjólarallí. Einnig verða útileikir, skákáskoranir og íþróttasýningar. Þá verður á svæðinu hoppukastali og boðið upp á andslitsmálningu, lögreglan farartæki sín og ræðir við börnin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×