Gölluð vegrið kosta mannslíf 6. maí 2005 00:01
Vegrið við Breiðholtsbraut, þar sem ung stúlka lést í bílslysi í gær, er gallað og of stutt að mati framkvæmdastjóra rannsóknarnefndar umferðarslysa. Nefndin telur vegrið almennt of stutt hérlendis og sendi Vegagerðinni nýlega athugasemd þess efnis í kjölfar banaslyss í Eyjafirði fyrir sex vikum. Nítján ára gömul stúlka lést í umferðarslysi á Breiðholtsbraut við Norðlingaholt í gærmorgun. Hún hét Lovísa Rut Bjargmundsdóttir og var til heimilis að Hraunbæ 84 í Reykjavík. Svo virðist sem bílnum hafi verið ekið upp á vegrið og hann farið eftir því öfugu megin áður en hann valt og hrapaði niður á göngustíg sem liggur undir veginn. Ágúst Mogensen, framkvæmdastjóri rannsóknarnefndar umferðarslysa, kynnti sér vettvang í gær og segir að í fyrsta lagi megi deila um hvort vegriðið sé nógu langt. Hann telur að svo sé ekki. Í öðru lagi sé þetta spurning um frágang á vegriðinu, þ.e. umrætt vegrið sé beygt niður í jörðina sem geri að verkum að bílar geti „prílað“ upp á það. Ágúst rifjar upp tvö alvarleg umferðarslys sem urðu við Hólmsá hjá Geithálsi, annað í aprílmánuði árið 2000 en hitt í nóvembermánuði árið 2002. Öðruvísi frágangur á vegriði er talinn hafa getað komið í veg fyrir að bílarnir færu á hvolf út í ána. Það þótti raunar ganga kraftaverki næst að allir skyldu komast lifandi úr þessum slysum. Ágúst segir rannsóknarnefndina hafa sent Vegagerðinni nýlega bréf vegna annars umferðarslyss þar sem lagt var upp með að almennt væru vegrið of stutt hér á landi. Slysið sem um ræðir varð á þjóðveginum milli Akureyrar og Dalvíkur þann 23. mars síðastliðinn en þá lést 19 ára gamall piltur er bíll hans fór út af veginum og steyptist fram af hömrum. Það slys, svo og slysið í gær, virðast vera dæmi um að lengri vegrið hefðu getað bjargað bjargað mannslífum.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira