Innlent

82 þúsund komu í hvalaskoðun

Tæplega 82 þúsund ferðamenn komu hingað til lands í fyrra gagngert til að skoða hvali. Þetta kom fram á tíu ára afmælisfundi hvalaskoðunarsamtaka Íslands í morgun. Í greinargerð sem dreift var á fundinum kemur fram að beinar og óbeinar tekjur af ferðamönnum sem koma hingað til lands til að skoða hvali námu 1,9 milljörðum króna í fyrra. Þar kemur fram að helsta ógnin við að ferðamönnum í hvalaskoðun fjölgi séu hvalveiðar stjórnvalda. Fjöldi hvala og fjölbreytileiki tegunda hér við land sé meiri en víðast hvar annars staðar í heiminum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×