Innlent

Samgönguráðuneytið dregur í land

Samgönguráðuneytið dregur í land með frumvarp sitt um að varðveita skuli fjarskiptaupplýsingar í heilt ár vegna hugsanlegra lögreglurannsókna. Ráðuneytið hefur fallist á athugasemdir Persónuverndar. Samgönguráðuneytið fellst á ábendingar Persónuverndar um að sérstakar reglur verði settar um skráningu Póst- og fjarskiptastofnunar á GSM-frelsi og dregur þannig í land frá því sem áður var í frumvarpinu.. Einnig hefur ráðuneytið fallist á að stytta varðveislutíma fjarskiptaupplýsinga sem talað var um í frumvarpinu, eða úr tólf mánuðum í sex. Páll Hreinsson, stjórnarformaður Persónuverndar, segir að stofnunin hafi bent samgönguráðuneytinu á að sjaldan sé verið að biðja um aðgang að eldri upplýsingum en sex mánaða gömlum í rannsókn opinberra mála í nágrönnulöndunum. Samgönguráðuneytið fellst ekki á ábendingu Persónuverndar um að lögregla geti fengið aðgang að IP-númerum tölva án dómsúrskurða. Páll segir að þar eigi að fylgja meginreglunni, að dómsúrskurð þurfi til að fá aðgang að þeim gögnum. Ekki hafi verið bent á veigamiklar ástæður til að breyta þessu, enda taki aðeisn 1-2 daga að fá slíkan úrskurð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×