Innlent

Banaslys við Víðidal

Banaslys varð á Breiðholtsbraut við Víðidal í gærmorgun. Fólksbíll ók á vegrið þar sem undirgöng eru fyrir gangandi umferð og hesta, rann eftir því smáspotta og féll svo fram af vegriðinu og var það hátt fall. Ökumaðurinn, sem var ung kona, kastaðist út úr bílnum og lést. Hún var ein í bílnum og er því ekki vitað hvers vegna slysið átti sér stað. Bíllinn er alveg ónýtur. Ekki er hægt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu. Sjö hafa látist í umferðarslysi á þessu ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×