Innlent

Spenna um afgreiðsluna

Ýmislegt virðist koma til greina varðandi afgreiðslu frumvarpsins. Bjarni Benediktsson, formaður Allsherjarnefndar, segir að nefndin geti tekið ákvörðun um að vinna málið enn frekar, hún geti fallist á það eða gefið frá sér nefndarálit þar sem hún vísi því til dómsmálaráðuneytisins. Þá geti nefndarmenn haft ólíkar skoðanir á því hvernig málið eigi að vera afgreitt. "Það er allt uppi á borðinu þar til það er komin einhver niðurstaða," segir hann. Bjarni vill ekki tjá sig um það hvernig líklegt er að nefndin taki á málinu eða hvort einhverjar breytingatillögur séu í farvatninu. "Það verður að koma í ljós," segir hann og kveðst margoft hafa sagt að hann hafi skilning á þessu máli en hugmyndin gangi of langt. "Ég hallast að því að það eigi að skoða aðrar leiðir eins og að láta fyrninguna hefjast fyrr," segir hann og nefnir sem dæmi við 18 ár eins og á hinum norðurlöndunum í stað 14 eins og hér. Jónína Bjartmarz segir líka ýmislegt koma til greina, meðal annars megi hugsa sér að koma með breytingatillögur eða taka málin til heildarskoðunar en hún vill ekki segja neitt um það hvort hún muni styðja frumvarpið á fundinum eða leggja fram breytingatillögur. Jónína hefur áður lýst velvilja sínum til frumvarpsins og hún ætlar að sjálfsögðu að koma á fundinn. "Það er engin ný afstaða sem ég hef til þessa máls," segir hún. "Ég vil breyta þessari fyrningarreglu og hef fært rök fyrir því hvers vegna. Það eru börn sem eiga í hlut." "Lítilræðis lenging á fyrningafresti kemur ekki til greina. Það gefur þessum einstaklingum ekki neitt," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, flutningsmaður frumvarpsins. Hann kveðst þó verða að sjá breytingatillögur áður en hann tekur afstöðu til þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×