Innlent

Með þriggja ára samning

Skrifað hefur verið undir kjarasamning Samtaka atvinnulífsins, Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags Íslands. Um er að ræða framlengingu gildandi kjarasamnings með ákveðnum breytingum. Kjarasamningurinn gildir fram til 31. maí 2008. Samningurinn er í meginatriðum eins og samningurinn við Farmannasambandið og Sjómannasambandið í vetur auk viðbótarákvæða um tímalaun og ákvæða um það þegar nýtt skip kemur til Íslands. Í þessum samningi eru ákveðnar reglur um að tryggja meðaltekjur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×