Innlent

Þýskur vitnisburður dreginn í efa

Mál tvíburabræðranna Rúnars Ben og Davíðs Ben Maitsland kom fyrir Hæstarétt í gærmorgun. Fjölskipaður héraðsdómur dæmdi í nóvember Rúnar í fimm ára fangelsi og Davíð í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelldan innflutning á hassi frá Þýskalandi. Einn dómari skilaði séráliti þar sem hann taldi fyrirliggjandi gögn ekki duga til að úrskurða bræðurna seka.

Báðir bræðurnir áfrýjuðu dómnum til Hæstarétts og krefjast sýknu. Þeir halda staðfastlega fram sakleysi sínu enda sýni engin gögn hvað orðið hafi um fíkniefnin né heldur liggur fyrir kaupandi á efnunum.

Jón Egilsson, verjandi Davíðs, sagði í samtali við Fréttablaðið að grundvöllur fyrir meirihlutaáliti Héraðsdóms væri veikur þar sem þar hafi verið hafður til hliðsjónar vitnisburður fyrir þýskum dómstólum og bendir á að eitt aðalvitnanna þar, Claus Friehe, sé margdæmdur sakamaður og hafi meðal annars hlotið dóm fyrir ljúgvitni og geti þarafleiðandi vart talist áreiðanlegt vitni.

Engin ný gögn hafa þó komið fram í málinu. Hæstiréttur stendur því frammi fyrir því hvort eigi að taka tillit til þýsku dómanna líkt og meirihluti héraðsdóms gerði. Búist er við dómsuppkvaðningu á fimmtudaginn í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×