Öll tilboð reyndust yfir áætlun 4. maí 2005 00:01
Öll þrjú tilboðin sem bárust í breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar reyndust töluvert yfir kostnaðaráætlun. Það verður þó ekki til að seinka verkinu. Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru fjölförnustu gatnamót landsins en um þau fara að meðaltali 40 þúsund bílar á dag. Lengi hefur staðið til að gera þar mislæg gatnamót en ákveðið var í vetur að fresta því og breikka gatnamótin þess í stað. Vegagerðin áætlaði að kostnaðurinn við framkvæmdina yrði um 210 milljónir króna en lægsta tilboðið í verkið hljóðaði upp á tæplega 230 milljónir. Það tilboð áttu Heimir og Þorgeir ehf. en Klæðning bauð 250 milljónir og Ístak tæpar 253 milljónir króna, eða tuttugu prósentum yfir áætlun. Þessi háu tilboð komu Jóhanni Bergmann, deildarstjóra hjá Vegagerðinni, ekki mjög á óvart. Hann segir verkið mjög erfitt enda umferð mikil á staðnum og það séu gerðar strangar kröfur um að halda umferðarflæði sem eðlilegustu. Reikna megi með að stýring umferðar kosti töluverða peninga. Jóhann segist hins vegar hafa búist við fleiri tilboðum þó að þau yrðu kannski ekki lægri. En lýsir þetta ekki bara ástandinu á markaðnum - það er nóg að gera hjá flestum verktakafyrirtækjum? Jóhann segir það spila inn í en einnig treysti verktakar sem séu með minna umleikis sér ekki í svo viðamikla stjórnun og þarna eigi að fara fram. Jóhann segist reikna með að gengið verði til samninga. Nú séu tilboðin í mati svo það sé ekki ljóst við hvern verði samið. Verkinu á að vera lokið 1. september og Jóhann segir þá áætlun standa.
Fréttir Innlent Mest lesið Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Innlent Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Innlent Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Innlent Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Erlent Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Innlent Drengnum sleppt en fleiri handteknir Erlent Munaði sex atkvæðum Erlent „Við gerum ekki svona við börn“ Innlent Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Innlent Birgir Guðjónsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Við gerum ekki svona við börn“ Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Líkamsárásir og brotist inn í raftækjaverslun Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Myndaveisla: Lúðrasveit, fánar og gríðarstór stytta á Verkalýðsdaginn Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum Fulllestað og veikt flutningskerfi raforku Þekkir ofbeldið sem konur í karllægum störfum verða fyrir Vilja móta samfélagið í þágu vinnandi fólks Íslenskum framleiðendum gerðir afarkostir og kröfugöngur verkalýðsins Verkalýðsdagurinn haldinn í skugga sjálftöku forystumanna Breytt veiðigjaldafrumvarp lagt fram Kaffistofa leigubílstjóra orðin „nyrsta moska í heimi“ Kalla saman ráðherranefnd svo rafmagnsleysi endurtaki sig ekki hér Birgir Guðjónsson er látinn Niðurstöðu um styrkjamálið megi vænta með vorinu „Þetta er mikill merkisdagur fyrir okkur“ Handtóku vopnaðan mann og kröfugöngur verkalýðsins „Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Hátíðardagskrá um allt land á verkalýðsdaginn Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Líkamsárás á veitingastað Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Sjá meira