Innlent

Útboð borgarinnar fyrirsláttur

"Þau svör sem við höfum fengið eru að okkar mati ófullnægjandi með öllu og þessi ákvörðun því enn jafn óskiljanleg," segir Guðmundur Gestsson, framkvæmdastjóri Hvalstöðvarinnar ehf. Telur hann ótvírætt að fyrirtæki sitt hafi átt hagstæðasta tilboðið í áframhaldandi áætlunarsiglingar til Viðeyjar sem Reykjavíkurborg bauð út fyrir skömmu en tilboði sömu aðila og rekið hafa Viðeyjarferjuna undanfarin ár var tekið. Guðmundur gerir margvíslegar athugasemdir við útboðsferlið og það tilboð sem fyrir valinu varð enda var tilboð Hvalstöðvarinnar mun lægra í peningum talið auk þess sem boðið var upp á aukinn fjölda ferða. "Það er kannski eðlilegt að tilboði Viðeyjarferjunnar hafi verið tekið þar sem í liggur í augum uppi að útboðsgögnin miðuðust við þeirra starfssemi. Þannig er stærð og flutningsgeta þeirra báta sem óskað er eftir til verksins nákvæmlega sú sama og þeir hafa yfir að ráða." Hann finnur einnig að því að ekki hafi verið metin sérstaklega sú staðreynd að fyrirtæki hans stundar þegar mikið kynningarstarf meðal erlendra ferðamanna og var ætlunin að nýta þá kynningarvél til að koma Viðey á kortið. Ferðamönnum til eyjunnar hefur fækkað mikið hin síðari ár en aðeins sóttu hana heim um fimmtán þúsund manns á síðasta ári samanborið við 25 þúsund manns árið 1999. Er opinber stefna Reykjavíkurborgar að auka fjöldann aftur og því kemur það Guðmundi á óvart að slík kynningarstarfsemi sem fyrirhuguð var fengi hans fyrirtæki verkið er lítt eða ekkert metin. "Mér sýnist að útboðið hafi verið fyrirsláttur einn og aldrei hafi staðið til að skipta um þjónustuaðila." Karl Ragnarsson, hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, var einn fjögurra fulltrúa sem fóru yfir tilboðin. Hann segir að vegna mikils umfangs hafi verið ákveðið að meta hvert tilboð á grundvelli punktakerfis í stað þess að einblína á kostnaðartölur. "Þarna spiluðu svo margir þættir inn í að annað var vart hægt. Meta þurfti styrkupphæðina, fjölda ferða, bátakost, reynslu viðkomandi og hvernig ferðatíðni kom heim og saman við þá þjónustu sem í eynni er. Tilboð Viðeyjarferða þótti vænlegast að okkar mati en þar með er ekki sagt að þeir hafi staðið sig mjög vel á öllum sviðum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×