Starfsendurhæfing í ólestri 3. maí 2005 00:01
Of litlu fjármagni er veitt til starfsendurhæfingar hér á landi. Ónógt framboð, skortur á fjölbreytni og ófullnægjandi eftirfylgni eru þröskuldar í vegi hennar. Jafnframt skortur á samræmingu úrræða og heildaryfirsýn. Þessar niðurstöður er að finna í óbirtri skýrslu starfshóps um starfsendurhæfingu á Íslandi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra skipaði hópinn, er kynnti sér skipulag og framboð úrræða til starfsendurhæfingar og endurmenntunar hér á landi og einnig á hinum Norðurlöndunum. Hann hefur nú skilað skýrslu sinni. Í henni segir enn fremur að erfitt sé að ná til fólks nógu snemma eða á fyrstu mánuðunum í ferli óvinnufærni. Lág framfærsla og flókið framfærslukerfi ýti einstaklingnum óeðlilega snemma til að sækja um örorkubætur án þess að starfsendurhæfing hafi verið reynd. Takmarkað framboð úrræða sé fyrir hendi utan höfuðborgarsvæðisins. Endurhæfingarlífeyrir Tryggingastofnunar sé í mörgum tilvikum of skammvinnur og reglur atvinnuleysistryggingasjóðs um missi bótaréttar séu of stífar. Starfshópurinn bendir á að beinn fjárhagslegur sparnaður fyrir þjóðfélagið við að forða örorku hjá einum einstaklingi nemi um 30 milljónum króna. Endurskipuleggja þurfi starfshæfingu og auka framboð og sveigjanleika til að bregðast við breyttum þörfum á vinnumarkaði. Komið verði á fót miðstöð starfsendurhæfingar. Við það skapist vettvangur til að vinna frekar að málefnum starfsendurhæfingar, þvert á ríkjandi fyrirkomulag. Áætlaður kostnaður við hana er 40 milljónir króna, en hópurinn bendir á atriði sem hafa í för með sér beinan og óbeinan sparnað með tilkomu hennar. Rætt verði við hagsmunaaðila um aðild þeirra að skipulagningu og fjármögnun sameiginlegs endurhæfingakerfis með einni miðstöð til að meta þörf einstaklinga á starfsendurhæfingu og vísa þeim á úrræði. Þá telur starfshópurinn meðal annars þörf á endurskoðun lagaákvæða um endurhæfingarlífeyri og þörf á breytingu læknisvottorða þannig að þau endurspegli tímanlega þörf á starfsendurhæfingu. "Efla þarf sértækar greiðslur til atvinnulausra," segir í skýrslunni," til að hvetja þá til náms og starfsendurhæfingar og inn á vinnumarkaðinn að nýju."
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sjá meira