Innlent

Ingimundur endurkjörinn formaður

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins á aðalfundi samtakanna sem haldinn er á Nordica-hóteli í dag. Á fundinum var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu um formann samtakanna. Samkvæmt henni hlaut Ingimundur 99,4% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins til næsta árs. Kosningaþátttaka var rúmlega 55%. Í ræðu sinni lagði Ingimundur áherslu á að hagsmunir atvinnulífsins væru almannahagsmunir þar sem gjöld og álögur á fyrirtæki væru á endanum borin af neytendum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×