Óvænt sigling til Íslands 3. maí 2005 00:01
Það sem átti að vera hugguleg heimferð tólf Norðmanna til Björgvinjar í Noregi frá Danmörku snerist upp í óvænta margra daga siglingu, m.a. til Íslands. Hópurinn skrapp í helgarferð frá Björgvin til Hanstholm í Danmörku með ferjunni Norrænu en fólkinu tókst ekki að fara frá borði í tæka tíð við heimkomuna í Björgvin og þarf því, nauðugt viljugt, að sigla með ferjunni í fimm daga til viðbótar, áður en það kemst á leiðarenda. Norska dagblaðið Bergens Tidende greinir frá því í dag hópurinn hefði óskað eftir því að fá að fljúga heim til sín frá Þórshöfn í Færeyjum, á kostnað ferjunnar, en því hefði verið hafnað. Þarf fólkið því að dúsa um borð í Norrænu þar til hún kemur aftur til Bjögvinjar eftir nokkra daga en þessa stundina er ferjan stödd á Seyðisfirði og fer um hádegi. Meðal norsku strandaglópanna eru Björn Engevik, eiginkona hans og tvö börn. Hann lýsir hinu óvænta ferðalagi vestur um Atlantshaf þannig, í viðtali við Bergens Tidende, að klukkan hálfsex á sunnudagsmorgun hafi þau fengið skilaboð í gegnum hátalarakerfi um að Norræna legðist að bryggju í Björgvin eftir einn og hálfan tíma. Þegar fjölskyldan ætlaði hins vegar að ganga frá borði þá hafi henni verið tilkynnt að það væri of seint og að hún yrði að sigla með til Hjaltlandseyja, samkvæmt áætlun Norrænu, og það sama gilti um átta aðra Norðmenn sem ekki komust frá borði í tæka tíð. Á Hjaltlandseyjum tók ekki betra við því enginn var með vegabréf, enda ætlaði hópurinn bara til Danmerkur. Hann hélt því áfram með Norrænu til Þórshafnar í Færeyjum. Björn Engevik krafðist þess að Smyril Line, sem gerir út Norrænu, greiddi farseðla þaðan til Noregs fyrir fjölskylduna. Því var hafnað og er fjölskyldan nú, ásamt hinum Norðmönnunum, komin í óvænta heimsókn til Íslands. Jan Walle, framkvæmdastjóri Smyril Line, segist ekkert skilja í því vegna svona margir fóru ekki frá borði í Björgvin. Fjórum sinnum hafi skilaboð verið gefin í hátalara en þegar í ljós kom hvernig í pottinn var búið hafi hreinlega verið of seint að snúa ferjunni við og það tekið of langan tíma. Flestir strandaglópanna ætla að nota tækifærið til að skoða sig um á Íslandi og hélt hluti hópsins strax í morgun með rútu til Mývatns. Norræna verður væntanlega komin aftur til Björgvinjar eftir fjóra til fimm daga.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sjá meira