Sport

Boston 2 - Indiana 2

Það tók Doc Rivers, þjálfara Boston Celtics, þrjá leiki að kveikja á perunni, en þegar hann loksins gerði það lét árangurinn ekki á sér standa. Rivers nýtti sér loksins styrkleika liðs síns gegn Indiana Pacers í fjórða leiknum í nótt og niðurstaðan var 110-79 burst gestanna, sem hafa jafnað metin í envíginu. Sérfræðingar vestanhafs höfðu undanfarna daga gagnrýnt Doc Rivers harðlega fyrir að nýta sér ekki augljósa yfirburði Boston á lið Indiana hvað hraða og líkamlega burði varðar og í nótt notaði hann lágvaxið lið sem keyrði upp hraðann og hreinlega kjöldró lurkum lamda heimamenn í Indiana, sem fundu aldrei svar í leiknum. Boston liðið hitt mjög vel í leiknum, en Indiana setti félagsmet með því að hitta aðeins úr innan við 27% skota sinna. Paul Pierce var stigahæstur í liði gestanna frá Boston, sem léku án Antoine Walker í leiknum, en hann tók út bann eftir riskingar í þriðja leiknum. "Doc fann svar við leik okkar og þetta herbragð hans að stilla um lágvöxnu liði gegn okkur heppnaðist fullkomlega," sagði Rick Carlisle, þjálfari Indiana eftir leikinn. "Hver veit nema sigur þeirra hefði verið enn stærri ef Walker hefði geta leikið með þeim." "Þegar við leikum góða vörn, erum við gott körfuboltalið. Við neituðum þeim um auðveldar sendingar allan leikinn og tókum þá alveg úr sambandi," sagði Doc Rivers um leik sinna manna, sem eiga næsta leik á heimavelli. Atkvæðamestir í liði Boston:Paul Pierce 30 stig (8 stoðs, 7 frák, 5 varin), Ricky Davis 15 stig, Delonte West 14 stig, Gary Payton 14 stig (6 frák), Raef LaFrentz 11 stig (6 frák), Tony Allen 9 stig, Marcus Banks 8 stig.Atkvæðamestir í liði Indiana:Stephen Jackson 24 stig, Reggie Miller 12 stig, James Jones 11 stig (9 frák), Jermaine O´Neal 9 stig (5 frák), Dale Davis 8 stig (7 frák), Eddie Gill 7 stig.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×