Ísland er dásamlegt land 30. apríl 2005 00:01
Að æfa tæpar 1.100 klukkustundir á ári og brenna allt að 9.000 hitaeiningum dag hljómar í fyrstu eins fjarri raunveruleikanum og mögulegt er. Þetta er engu að síður það sem besti skíðagöngumaður allra tíma, Björn Dæhlie, gerði á sínum gullaldarárum. Fréttablaðið hitti Dæhlie í vikunni og ræddi við hann um fortíðina og framtíð, Ísland og afreksmenn. Umrædd gullaldarár Dæhlie voru á tímabilinu 1991-1999. Þá vann hann til 14 verðlauna á þremur Ólympíuleikum, þar af átta gullverðlaun, auk þess að vinna fjölda heims- og Evrópumeistaratitla. Að öllu samanlögðu er verðlaunaafrakstur Dæhlie á ferlinum nokkuð sem fáir, ef nokkrir, aðrir afreksmenn geta státað af. Í dag hefur hann dregið sig úr sviðsljósinu og frá því að hann hætti keppni um aldamótin hefur Dæhlie skrifað bækur, haldið fyrirlestra og starfað í sjónvarpi. Þá stofnaði hann sitt eigið byggingafyrirtæki sem og fatahönnunarfyrirtæki sem vinnur nú hörðum höndum við að búa til skíðalínu sem nýjar kynslóðir munu koma til með að klæðast á Ólympíuleikum næstu ára. Þá æfir hann „ekki nema“ fimm sinnum í viku að eigin sögn og fer mestur tími hans í að sinna konu sinni og tveimur börnum. „Eftir að ég kynntist fjölskyldulífinu fengu skíðin að fara á hilluna. Ég reyni að eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni minni. Hún er það mikilvægasta í lífinu,“ segir þessi dáðasti íþróttamaður Noregs fyrr og síðar og sá sem oft hefur verið nefndur boðberi þessarar skíðaíþróttar á síðari árum. Skíðagangan var allt í rúm tíu ár Í rúm tíu ár helgaði Dæhlie sig skíðagöngunni, einni af alerfiðustu íþróttagreinum heims, þar sem eina leiðin til árangurs er æfing, æfing og aftur æfing. Henni sinnti Dæhlie með svo þrotlausum hætti að erfitt er að gera sér í hugarlund. Þegar hann var upp á sitt allra besta æfði Dæhlie hátt í fimm klukkustundir á dag, þar sem mestur tíminn fór í að hlaupa. Hann hljóp tugi kílómetra á degi hverjum þar sem dagleg brennsla var um 9.000 hitaeiningar að meðaltali – fjórfaldur ráðlagður dagskammtur fyrir meðalmann. Það segir sig sjálft að til að brenna þvílíku magni af hitaeiningum þarf að borða ansi mikið og segir Dæhlie að sykur sé besti vinur skíðagöngumannsins. „Þegar mest var fór sólarhringurinn að langmestu leyti í þrjá einfalda hluti; æfa, borða og sofa,“ segir hann. Súrefnisinntaka er hlutur sem skíðagöngumenn verða að hafa í lagi og til að auka hana er einfaldasta ráðið að æfa sem mest. Til að undirstrika hversu góðu formi Dæhlie var í má geta þess að aðeins einn maður í sögunni hefur mælst með meiri súrefnisinntöku en hann – spænski hjólreiðagarpurinn Miguel Indurain. Súrefnisinntaka Dæhlie mældist 95 en sá spænski var einu stigi hærri. Til samanburðar má nefna að það þykir afburðagott þegar knattspyrnumaður mælist með súrefnisinntöku upp á 65-70. „Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta hljómar eins og bilun þegar svona er að orði komist. En þetta er það sem þarf til að komast í hóp þeirra bestu,“ segir Dæhlie. Eiður er sönnun Nú hefur Dæhlie tekið að sér að halda utan um hóp tólf skíðamanna af Norðurlöndunum sem eiga það sameiginlegt að hafa verið valdir í svokallaðan hóp vonarstjarna VISA. Þrír íslenskir skíðamenn eru í hópnum, þau Kristján Uni Óskarsson, Dagný Linda Kristjánsdóttir og Elsa Guðrún Jónsdóttir, og er markmiðið að komast á Vetrarólympíuleikana sem haldnir verða á næsta ári í Tórínó á Ítalíu. Það var vegna sinnar miklu reynslu sem Dæhlie var beðinn um að vera þessum hópi innan handar og það var eftir að hann hafði sett sig í spor hinna ungu skíðamanna sem hann ákvað að slá til. „Ég hefði ekki slegið hendinni á móti slíkri hjálp þegar ég var tvítugur. Svona stuðningur eins og VISA er að sýna er ekkert minna en ómetanlegur og hjálpar Íslendingum til að komast á stærsta íþróttaviðburð heims,“ segir Dæhlie og á þar við Ólympíuleikana. „Mitt hlutverk er að miðla til þeirra því sem ég hef lært á mínum ferli og gefa þeim ráð um allt milli himins og jarðar – tækni, undirbúning, keppni, æfingar, fjölmiðla og einfaldlega lífsstílinn sem íþróttamaður,“ segir Dæhlie, sem þannig leggur sitt af mörkum til skíðaíþróttarinnar. Þrátt fyrir að hafa margoft verið beðinn um það hefur Dæhlie ekki tekið að sér þjálfun skíðagöngumanna. Fjölskylda hans og fyrirtækin tvö eiga hug hans allan auk þess sem hann sinnir áhugamálum sínum af miklum móð. Til að sinna tveimur þeirra, skotveiði og fiskveiði, hefur Dæhlie í tvígang lagt leið sína til Íslands. „Ísland er dásamlegt land og það var æðislegt að veiða þar. Ég á alveg örugglega eftir að koma aftur.“ Dæhlie segist lítið þekkja til íslenskra íþróttamanna fyrir utan skíðamennina þrjá. Einn kemur þó fljótlega upp í hugann. „Eiður Smári Guðjohnsen. Frábær leikmaður og einn af þeim bestu í enska boltanum,“ segir Dæhlie, sem er mikill áhugamaður um fótbolta og þá sérstaklega þann enska. „Það að Eiður Smári skuli vera lykilmaður í stærsta knattspyrnuliði heims finnst mér aðdáunarvert. Að Ísland, 300 þúsund manna eyja í Atlantshafinu, skuli eiga slíka afreksmenn sannfærir mig enn frekar um að fleiri íslenskir íþróttamenn geti náð jafn langt, eins og til dæmis skíðamennirnir ungu,“ segir Dæhlie og bendir á íslensku krakkana í afrekshópnum sem eiga, að undanskildum Kristjáni Una, enn eftir að ná ÓL-lágmörkunum. „Ég hef fulla trú á að þau geti komist á ÓL og gert góða hluti þar.“Björn Dæhlie vann hann til 14 verðlauna á þremur Ólympíuleikum, þar af átta gullverðlaun, auk þess að vinna fjölda heims- og Evrópumeistaratitla.© Vignir GuðjónssonBjörn Dæhlie með íslensku krökkunum í Vonarhópi Visa en það eru þau Elsa Guðrún Jónsdóttir, skíðagöngukona, og svigskíðafólkið Dagný Lind Kristjánsdóttir og Kristján Uni Óskarsson.© Vignir Guðjónsson
Íþróttir Mest lesið Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Körfubolti Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Fleiri fréttir Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Ramsdale mættur til Newcastle Eggert Aron skoraði og lagði upp í stórsigri Brann „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Davíð Snær og Guðlaugur Victor lögðu upp mörk „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Leclerc óvænt á ráspól í Ungverjalandi Ledecky lenti í vandræðum en hélt krúnunni Arnór og Ísak skoruðu í stórfurðulegum tíu marka leik Settu Íslandsmet í síðasta sundinu á HM í Singapúr Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög Sjá meira