Sport

Guðni er kóngurinn í Bolton

Eins og kannski einhverjir vita ganga tveir íslenskir knattspyrnumenn á mála hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Djurgarden, þeir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen. Það sem færri vita er að í liðinu er einnig að finna fallna stjörnu sem allir sannir knattspyrnuáhugamann ættu að þekkja afar vel, vængmanninn Ibrahim Ba, fyrrum leikmanns Frakklands og AC Milan.  Fréttablaðið náði tali af Ba í Stokkhólmi í vikunni og spurði hann út í íslenska knattspyrnu. Ba tjáði blaðamanni að hann teldi Eið Smára Guðjohnsen einn hæfileikaríkasta leikmann ensku úrvalsdeildarinnar. "Hann er leikmaður sem allir þekkja og óttast. Ég keppti nokkrum sinnum á móti honum og dáðist alltaf að því hvað hann gat gert með boltann," sagði Ba, sem lék eitt tímabil með Bolton í Englandi, árið eftir að Guðni Bergsson lagði skóna á hilluna. Ba vissi þó vel hver Guðni væri. "Það er synd að ég skuli aldrei hafa fengið tækifæri til að spila með honum því hann er einn virtasti leikmaðurinn í sögu félagsins. Það eru myndir af honum úti um allt og nafnið hans er nánast heilagt innan félagsins. Það er borin gríðarleg virðing fyrir Guðna. Liðsfélagar mínir sögðu mér sögur af honum og hversu frábær náungi hann væri. Það sama á við um stuðningsmennina, Guðni er í dýrlingatölu hjá þeim," sagði Ba. Með hliðsjón af hinum ört fallandi ferli Ba stóðst blaðamaður ekki mátið um að spyrja hann hvort hann gæti hugsað sér að spila á Íslandi eftir að dvölinni hjá Djurgarden lýkur. "Veistu, mig langar að segja að það sé aldrei að vita en ég get það ekki. Ég er 31 árs og á tvö ár eftir af samningi mínum hér í Svíþjóð. Eftir að hann rennur út held ég að það sé komið nóg af fótbolta hjá mér í bili. Svo að ég held að ég verði bara að heimsækja Ísland við tækifæri í einhverjum allt öðrum tilgangi en að spila fótbolta."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×