Þróar harðkornaskósóla 6. mars 2005 00:01
Íslendingur hefur náð góðum árangri í þróun harðkornaskósóla. Á morgun heldur hann til Bandaríkjanna til að taka þátt í samkeppni um viðskiptaáætlanir. Óskar Jónsson hefur unnið að þróun harðkornasólanna í fjögur ár en hugmyndin er byggð á harðkornadekkjum sem fyrirtækið Nýiðn hefur unnið með undanfarin ár. Óskar segir að skósólarnir séu mjög öruggir. Þeir séu þeir bestu og gripmestu í heimi og þá megi nota undir allan almennan skófatnað bæði við blautar og hálar aðstæður, en mikil þörf sé á öryggissólum sem þessum. Á morgun heldur Óskar til Bandaríkjanna til að taka þátt í samkeppni um viðskiptaáætlanir en hann er kominn í fimm manna úrslit með viðskiptahugmyndina að harðkornasólunum. Til fararinnar fékk Óskar styrk frá iðnaðarráðherra. Óskar hefur unnið til tvennra verðlauna vegna harðkornasólanna. Hann hlaut Nýsköpunarverðlaunin árið 2003 og fyrstu verðlaun í Evrópusamkeppni hugmyndasmiða sama ár. Óskar hefur leitað eftir stuðningi til Nýsköpunarsjóðs sem ekki hefur getað lagt verkefninu lið vegna fjárskorts síðustu tvö ár. Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn á að geta farið að framleiða sólana segir Óskar að það sé ekki spurning hvort heldur hvernær það gerist. Hann þurfi nú að skoða þann möguleika að leita til fjárfesta til að fjármagna verkefnið því sólarnir eigi ekki bara erindi við Íslendinga heldur fólk út um allan heim. Hann sé mjög bjartsýnn á að harðkornasólarnir nái að festa rætur í skóiðnaðinum.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Bauð Pútín að vera „músin“ hans Erlent Fleiri fréttir Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Sjá meira