Innlent

Blóð má greina löngu eftir verknað

Íslenskir sérfræðingar í glæparannsóknum hafa sýnt fram á að hægt er að greina blóð utandyra í mismunandi jarðvegi löngu eftir ofbeldisverknað, jafnvel hálfu öðru ári síðar. Ómar Pálmason, rannsóknarlögreglumaður hjá tæknideild lögreglunnar, segir í Morgunblaðinu í dag að þessar niðurstöður hans og Þóru Steffensen réttarmeinafræðings hnekki hugmyndum færustu réttarvísindamanna heims um að þetta sé ógerlegt. Rannsóknin var að sögn Morgunblaðsins kynnt við bandarísku réttarvísindaakademíuna þar sem hún vakti mikla athygli og niðurstöðurnar verða birtar í American Journal of Forensic Science, sem er stærsta blað á sviði réttarvísinda í heimi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×