Innlent

18 mánaða börn greind einhverf

Hægt er að greina einhverfu í börnum allt niður í átján mánaða aldur. Einn helsti sérfræðingur heims á þessu sviði segir það skipta gríðarlegu máli að börnin greinist sem fyrst.  Dr. Tony Charman er sérfræðingur í þroska barna og einhverfu og þykir hann einn helsti sérfræðingur heims á sviði einhverfu. Hann verður aðalfyrirlesari á námstefnu sem haldin verður á morgun á Grand Hótel þar sem fjallað er um skimun og snemmgreiningu einhverfu. Það hversu snemma börn greinast er mismunandi eftir börnum og ræðst af því hve snemma einkennin koma í ljós. Charman segir mjög áríðandi að greina einhverfu í börnum sem fyrst. Ein mikilvægasta ástæðan sé að það geti verið mjög ruglingslegt fyrir foreldra að ala upp barn sem geti ekki tjáð sig við þá og með hegðun sem sé illskiljanleg og erfið viðfangs. „Það er mikilvægt að skilja einhverfuna og vera sagt að það sé ástæða fyrir hegðuninni og hún stafi ekki af því hvernig foreldri maður er,“ segir Charman. Með því að greina einhverfu snemma er svo hægt að skipuleggja betur skólagöngu barns, alveg frá leikskóla og upp úr, og einnig hvaða aðstoð þurfi og aðrar þarfir barnsins. Evald Sæmundsen sálfræðingur segir að farið sé að greina börn hér á landi allt niður í tveggja ára aldur og jafnvel fyrr. Það sé hins vegar alger undantekningartilvik. Um 20% barna greinast undir þriggja ára aldri en um þriðjungur greinist ekki fyrr en á grunnskólaaldri sem Evald finnst frekar seint. Evald segir auk þess að það sé fjárhagslega hagkvæmt að greina einhverfu sem fyrst því það þýði minni útgjöld vegna þessarra einstaklinga síðar á ævinni, að ekki sé minnst á lífsgæði barnanna og foreldra þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×